Fulli Daninn
08.11.2007 09:23:29 / ingibjorn

Spurning dagsins

Ég hef verið að spá í einu og vonandi veit einhver lesandi meira en ég og getur svarað þessu fyrir mig.

Mér skilst að við borgum stefgjöld af öllum geisladiskum og DVD-diskum og þá fór ég að spá ef ég næ í ólöglegt efni og skrifa það á disk sem ég er búinn að borga stef gjöld af er ég þá ekki búinn að borga höfundarréttinn og þetta er ekki ólöglegt efni lengur eða hvernig virkar þetta eiginlega?

 

P.S. Mastersverkefnið mitt er komið á netið og hægt er að skoða ritgerðina hér! Undir DTU.


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 13:52:00 / ingibjorn

Laaaaangt síðan að ég bloggaði

Margt búið að gerast síðan síðast. Úff hvar skal byrja:

Maður er orðinn starfandi rafmagnsverkfræðingur.

Við erum flutt í risa-stúdentaíbúð í grafarholtinu.

Við keyptum Ford Focus, sem er btw Rally Meistarinn eitthvað af síðustu árum. Sjá mynd hér

Ég er orðinn útskrifaður sjálfmenntaður IKEA byggingarmeistari.

Já ekkert annað sem er rosa merkilegt. Annars hefur núna undanfarið verið mikil umræða um hvað tannlæknar eru að svindla á okkur, sem hefur farið smá í pirrurnar á mér því yfirleitt er þetta fólk sem veit ekkert í hausinn á sér (já ég veit fullt í hausinn á mér ;) ). Þannig fyrir fjölmörgu lesendur síðunnar datt mér í hug að hafa smá umræðu.

Nú eru tannlækningar erfitt nám og að því ég best veit þá eru tannlæknar með hæstu sjálfsmorðstíðnina í heiminum, svo þetta ætti að vera ágætlega borgað. Segjum að þeir séu með 450.000 kr á mánuði svo er alltaf ein klínka (politicly correct tannhreinsir eða tanntæknir man ekki) og ætli hún sé ekki með kringum 250.000 kr á mánuði. Ef maður miðar við 165 tíma að meðaltali á mánuði ef þeir ná að selja alla tímana sem ætti ekki að gerast alltaf, myndi áætla að yfir 90% útseldir tímar væri mjög gott. Þá er tannlæknirinn með kringum 2.700 kr og klinkan 1.600 kr á tímann.

Samtals eru þetta 4.300 kr á tímann . Það er vel þekkt stærð að til að koma á sléttu þarf að selja tímann út á allavegna 2x hærri taxta (yfirleitt miðað við 2,2) til að borga öll launatengd gjöld og kostnað, leigu og fleira. Þá er tíminn kominn í 8.600 kr (10.500 ef miðað er við 2,2x og 90% útseldir tímar) . Þetta er lágmarksgjald á tímann ef "fyrirtækið" ætti að græða þá þarf að selja á enn meira.

Í þetta vantar allt efni sem ég hef ekki hugmynd um hvað kostar, það vantar endurskoðanda sem sér um bókhaldið, vextir á lánum fyrir nýja og gamla tannlækna sem þurfa að kaupa ný tæki, það vantar allt viðhald á tækjum og kaup á nýjum tækjum.

Er skrýtið að það kosti mikið að fara til tannsa? Held ekki.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 23:50:23 / ingibjorn

Myndir

Var að setja inn fullt af myndum úr ferðinni okkar. Eru undir Danmörk 2006. Check it out!

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 16:32:42 / ingibjorn

Almost there....

Nú sit ég við skrifborðið mitt í byggingu 325 að skrifa síðustu stafina í ritgerðinni minni, líklega síðasta seta mín hér í DTU. Ritgerðin er búin, klöppuð og klár og tilbúin í útprentun...svona næstum því. Svo á morgun prenta ég út 7 eintök skila og segi bæbb.

Á þriðjudaginn er svo leiðin haldin til Jótlands þar sem ég og Eva og fjölskyldan hennar verðum í sumarhúsi fram á laugardag. Eftir það ætlum við tvo að kíkja til Malmö í eina nótt og Stokkhólmar í þrjár. Aðeins svona að gera eitthvað annað en að ferðast :D

Vörnin er líklega 13.september og fljótlega eftir það þá flytur maður heim á klakann að vinna og vesen ;)

Annars ekkert að frétta, nenni bara ekki að skrifa meir, hef samt ekki samvisku í að fara heim strax. Læri læri lær í síðasta skipti :D

 

p.s. Sigga vinkona Evu kom til hennar í heimsókn um daginn, hún er víst ein af aðal áðdáendum síðunnar minnar og vildi endilega að ég minntist á hana ;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 14:56:48 / ingibjorn

Lítið að frétta

Langt síðan síðast, enda lítið búið að gerast. Fór til Íslands í nokkra daga það var ljúft. Eftir að ég kom heim hefur það bara verið arbejde arbejde arbejde. Vakna um 9 mættur í skólann 10, hádegisamatur 12, flengi Árna og Vidda í fuzzball held svo áfram að læra til 6-7-8-9 eftir stuði. Er núna búinn með módelið mitt og kominn með 70 blaðsíðna skýrslu með öllu á að vera kringum 100-150 síður svo það er nóg eftir. Á að skila 16 júli en hef smá öryggisnet því mælingar töfðust og eitthvað og má skila 30. júli ef allt klikkar.

 Jæja nóg af leiðinlegu stuffi. Fór á Justin Timberlake tónleika í Parken voru helvíti fínir og svo fór ég á Pearl Jam í forum og þeir voru vægast sagt geeeeeðveikir. Annars er lítið að frétta maður er bara að læra alla daga...nennti alls ekki að blogga en var búið að nauða heilmikið í mér svo maður kemur bara með svona stuðfærslu! ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 09:42:08 / ingibjorn

Boltinn kominn

Þá er biðin búin. Man ekki hvenær ég vann boltann, febrúar-mars var allavegna geðveikur snjór, en núna er hann kominn heim. Fór út í pósthús og sótti kvikindið. Splunkunýr Official UEFA Championship League Football, áritaður af ekki minni mönnum en Peter Schmeichel, Brian Laudrup og Preben Elkjær.

Nú er spurningin hvað maður á að gera við hann. Þrennt í stöðunni, get bara notað hann það væri samt hálfgerð synd þar sem hann er áritaður. Gæti átt hann upp í hillu en finnst það líka synd því þetta er svo flottur bolti. Eða get selt hann sem væri líka synd því mig langar að eiga hann, en kannski einhverjir danir þarna úti sem gætu kunnað betur að meta hann. Myndi þá kaupa mér nýjan til að sparka í og bjór fyrir afganginn.

Hvað finnst ykkur, óteljandi lesendum síðunnar minnar sem kommentið allt of mikið?


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 08:39:08 / ingibjorn

La Vita Bella

Vaknaði í morgun við ógeðslegt sms hljóð, einhver að senda mér sms á óguðlegum tíma. Sólin reyndar komin upp en var vibba þreyttur. Teygði mig eftir símanum, klukkan var 7:38!!! Þú veist hver þú ert sem sendi smsið....SKAMM. Allavegna sængin togaði áfram í mig en sólin var ákveðin í að halda mér vakandi. Endalaus birta flæddi í gegnum gluggatjöldin og var eiginlega ómögulegt að sofa lengur. En þar sem ég er vel æfður í slíkum málum, náði ég smá lúr í viðbót. Tveimur tímum síðar vaknaði ég eldhress og fór réttum megin fram úr aldrei þessu vant. Klæddi mig í, setti á mig töffarasólgleraugun, iPodinn í eyrun (Foo Fighters varð fyrir valinu) og hélt út í veröldina. Úti tók við mér góðvinur minn sólin og góða veðrið. Allt á fullu, fólk að vinna eða rölta á sinn samastað. Beygði fyrir hornið og rölti inn í bakaríið mitt, fékk mér skonsu og djús. Settist í lestina og las blaðið á leið minni upp í skóla, á forsíðunni blasti við mér nýja prinsessan okkar (djöfull er maður orðinn mikill dani) leit bara ágætlega út og Mary náttúrulega alltaf jafn flott. Ferðalagið upp í skóla var stutt og sit ég núna við tölvuna, er eiginlega búinn að sannfæra mig um að fara að læra. Klukkutími í fótbolta í 20 stiga hita og sól. Djöfull er Danmörk góð.

Bið að heilsa á klakann ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 12:20:05 / ingibjorn

Turns Nice Girls Naughty!

Þá eru páskarnir búnir og maður orðinn algjör belgur. Gerði ekkert í fríinu nema að borða páskaegg (fékk 2 stór og 6 lítil), borða góðan mat og drekkja bjór. Enda voru þetta þvílíkt ljúfir páskar :D Eftir páskana hefur allt verið á fullu að reikna í verkefninu, er núna að reikna impedance (man ekki íslenska orðið og enginn af þessum sprenglærðu íslensku næstum rafmagnsverkfræðingum heldur) og þéttnavirkni fyrir ósamhverfar loftrafmagnslínur, geðveikt stuð.

Í gær héldum við svo páskamatinn, Viddi fékk sent hangikjöt til sín um páskana en þar sem hann átti heima á klósettinu um páskana þá var matnum frestað. Svo í gær þá sauð Viddi hangikjetið og ég gerði kartöflumús. Við piparsveinarnir erum nú ekki þekktir fyrir stóreldamennsku, fyrsta skipti sem hann gerir hangikjöt og fyrsta skipti sem ég geri kartöflumús. Hringdi í múttu til að fá uppskriftina, pabbi alveg brjálaður þar sem hann er sjálfskipaður kartöflumúsakóngur og hundóánægður að ég hafi ekki hringt í hann :D En þetta tókstu svona þvílík vel hjá okkur. Rafnar gaf eina Michelin stjörnu gerir aðrir betur!

Svo að lokum, hafið þið séð Axe auglýsinguna, "Turns Nice Girls Naughty". Ég hef nákvæmlega sömu áhrif...samt hef ég aldrei notað Axe! Skrýtið....

 p.s. er að koma til Íslands 31 maí og fer aftur 4 júní, nú fer hver að verða síðastur til að panta samverustund með mér!


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 13:19:44 / ingibjorn

Menningarjöfur!

Jæja þá er stóra stundin runnin upp, ætla loksins að nenna að blogga....samt bara smá. Er ekki bara klassiskt að rifja upp hvað hefur gerst síðan síðast.

Ég gerðist menningarjöfur og fór á ballett!! Fór í Gamle Teater á Kongens Nytorv og sá þar Caroline Mathilde. Var nú bara helvíti gaman að sjá fullorðna menn í sokkabuxum að hoppa um, rifjaði upp gamla takta síðan úr Verzló ;)

Icelandair open mótið í fótbolta var haldið í köben með tilheyrandi sprikli og fyllerí. Okkar lið vann heilan leik en bættum það upp í drykkju og vitleysingshætti.

Svo héldum við í FíVDTU upp á hina stórkostlegu árshátíð okkar. Fengum jónshús og eldðum 3 rétta máltíð í liðið, heil 60 stykki sem komu! Brauð og pestó í forrétt, 22 kg af nautakjöti í aðalrétt og svo eplakaka með ís í eftirrétt og auðvitað nóg af veigum til að skola þessu niður. Eftir matinn var leiðin haldin á Emmu Bar sem er aðaluppabarinn í Köben og var djammað fram á rauða nótt.

 Helgi var hérna um helgina og auðvitað var lítið annað gert en að hanga í bænum og spila Fight Club á nýju PS3 sem Helgi keypti sér :D Fórum á Reef'nBeef annað kvöldið í ruglnautasteik og svo árshátíðin á laugardeginum. Þannig núna er það bara kjúklingur og laufblöð í matinn hjá mér, búinn að borða nóg nautakjöt í bili.

 Framundan er svo 300 á föstudaginn og veit ekki alveg hvernig páskarnir verða, ætla ekki heim svo það verða danskir páskar hjá mér. Veit ekki alveg hvernig það verður, en það verður allavegna letivika :D

 Hilsen


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 14:36:51 / ingibjorn

Snjóar og Snjóar!

Vaknaði eldhress og fullur af lífsgleði í morgun og ætlaði sko í skólann. Kíki út og það er endalaust mikið af snjó úti, allar samgöngur liggja niðri og fólk er hvatt að halda sig inni....jú jú það er slatti af snó úti, svona meðal íslensk snjókoma :D Danir!

Annars er það helst í fréttum að ég fór upp í Asnæs virkjun á þriðjudaginn og nú er verkefnið mitt komið á fulla ferð. Svo það er bara læri lær, fyrir utan smá djamm, meðal annars vísindaferð á morgun.

Svo í gær vann ég Championship League fótbolta! Var dreginn út í sjónvarpinu og held að Peter Schmeichel hafi lesið nafnið mitt, missti af því. Ekki margir sem hafar orðið svo frægir!! ;)

Svo hringdi einhver gaur í mig og blaðraði eitthvað á dönsku og ég hélt að einhver væri að rugla í mér, en sagðist vera með bolta handa mér og vera heima hjá mér að bíða eftir mér. En þar var hann ekki og eftir heilmikinn eltingaleik fundum við ekki hvorn annan. Veit ekki hvar hann hefur verið. Þannig að ég hringdi bara í dag í 3+ og fæ boltann sendan í pósti :D Fyrsta skipti sem ég vinn í svona leik...eins gott að þetta sé alvöru bolti en ekki einhver crappy kókbolti!

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 19:51:50 / ingibjorn

25 ára.....+1

Þá er fyrsta árið sem 25 ára strákur búið og annað að byrja. Kveðjurnar eru búnar að hellast yfir mig í dag, byrjuðu klukkan hálf átta og svo hálf níu....náttúrulega frá dönum! Veit ekki alveg hvenær fólk heldur að ég fari á fætur eiginlega ;)
Byrjaði daginn á því að fara í skólann og gefa strákunum súkkulaðiköku...reyndar bara 2 við, allir hinir haugar og voru heima. Fór svo til Rafnars með sneið og svo fórum við að rölta í bænum að leita að afmælisgjöf frá mér til mín. Fann gallabuxur...frumlegt og ætli maður reyni ekki að finna skó líka.
Svo ætla ég bara að hafa endalaus rólegheit hérna heima, einn með sjálfum mér. Á laugardaginn er svo stráka/afmælishittingur. Ætlum að byrja í fordrykk hjá Rafnari. Við fórum áðan í SuperMarco, sem er svona ítalskur súpermarkaður. Keyptum skinku, ólífur og pesto, yummi. Svo verður leiðin haldin á Reef'n beef, ástrálskur staður í miðri Köben. Planið er að smakka kengúru, krókódíl og emúa....já og svo slatta af Foster (famous Australian beer), er búinn að steingleyma hvernig hann er ;) Eftir það er allt opið en grunar að við eigum eftir að vera að skríða heim snemma á mánudagsmorgni :D

Eitt að lokum, ef þið viljið komast í gott flautstuð mæli ég með "Young Folks" með Peter Bjorn og John. Merkilegt miðað við að Svíar eru eins og þeir eru þá ná þeir alltaf að búa til góða músik.

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 12:52:06 / ingibjorn

Læri lær

Þá er maður byrjaður á Mastersverkefninu eða svona. Mætti galvaskur þarsíðasta mánudag og ætlaði að byrja en leiðbeinandi stoppaði mig í spörunum, har travlt i dag og i morgen. Svo ég byrjaði í í raun á miðvikudaginn síðasta. Fékk þetta fína skrifborð og tölvu. Nema tölvan er eitthvað að snappa, alltaf þegar ég kveiki á hana kemur bara á skjáinn, FEJL. Þeir ætluðu að redda þessu í síðustu viku en enn er hún í FEJL-mode svo ég á bara að vera að lesa....gengur rosa vel. Maður er svo agaður :P Semsagt mikið sjónvarpsgláp, bæjarferðir og fyllerí á mér síðustu daga. Já gleymdi einu, er með síma líka takk fyrir. Vantar bara einkaritara ;)

Svo var helgin ekki sem verst, fórum á hin ótrúlega líflega Kagsåbar. Á föstudaginn fengu kellurnar á kolleginu útivistarleyfi og við vorum þarna þrír strákar með endalaust mörgum kvensum. Mjög gaman, crazy kellur hérna á kolleginu greinilega :D
Svo á laugardaginn fengu kallarnir útivistarleyfi og varð ekkert síðra djamm úr því. Merkilegt kvöld, komst meðal annars að því að stelpur eru held ég meiri netperrar en strákar og eru helvíti lagnar á Google ;)

Annars er lítið á döfinni nema læra. Þannig ef ég er ekki að blogga þá er ég að læra......já svo er stefnan sett á Justin Timberlake í Parken 23. júni, allir skemmtilegir velkomnir með....hinir ekki! ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 22:47:11 / ingibjorn

Blogg blobb

Endalaust langt síðan að ég bloggaði síðast, svo stutt yfirlit.
FíVDTU hélt Julefrokost sem heppnaðist þvílíkt vel, elduðum 15kg af Flæskesteg og allir sáttir!
Fór í 3 próf og gerði 3 verkefni á 21 degi!
Kom til Íslands og fékk fullt af pökkum og hef ekki hætt að borða.
Fór að vinna í Tengivirkinu í Fljótsdal (Kárahnjúkum sem eru ekki sveitungar og vita ekkert hvar Fljótsdalur er ;) ) Geggjað að sjá þetta, þvílíkt mannvirki. Veit ekki yfir hvað fólk var brjálað, komið þetta fína vatn í annars eyðilegt land. Verður örugglega vinsælt sumarbústaðaland ;)

Annars er ekki mikið að frétta, bara skóli og vinna. Svo er það aftur til DK á sunnudaginn. Hlakka eiginlega bara til, ekki laust við að maður sé orðinn smá dani ;)

Setti inn nokkrar myndir frá Fljótsdal og Kárahnjúkum!


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 23:17:37 / ingibjorn

Pirringur

Ég er búinn að vera pirra mig undanfarið af hverju allir þessi vitleysingar fá að kjósa í prófkjöri Sjálfstæðismanna. Eina sem þeir gera eru að henda konum niður listann og hylla menn eins og Sigurð Kára og Guðlaug,,,,en samt hef ég hugsað hvað eru hinir flokkarnir að gera, jafn miklir vitleysingar þar. En núna er komið nóg, Árni Johnsen var kosinn í fyrsta sætið í Suðurkjördæmi. Ok hann er búinn að fá uppreisn æru en samt, hvernig getur fólk verið svona "ritskoðað"......það er allavegna ákveðið að mitt atkvæði verður autt í maí. Það er að segja ef ég nenni að finna hvert ég á að fara til að kjósa hér í DK :D

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 14:30:14 / ingibjorn

Keane..

Fór á Keane tónleikana í gær með Sigga Guð og Birni, þeir voru bara geggjaðir. Hef aldrei hlustað mikið á þá og kom mér bara nokkuð á óvart hvað þeir eiga mörg góð lög. Tónleikarnir voru í KB hallen og ég veit ekki hvort þetta á að vera svona...en það virðist vera sameiginleg klósett, nema að stelpurnar hafi verið að stelast til að sleppa við röðina á stelpuklósettið, sem ég get alveg skilið því hún var monster. Allavegna ég stend þarna í mestu makindum að gera mitt, þegar það stendur stelpa allt í einu við hliðin á mér að þurrka á sér hendurnar. Ég náttúrulega kurteisi Íslendingurinn heilsa bara og reyni að taka þetta á kúlinu, þá kemur frá henni "jeg kigger ikke..." já já einmitt! ;) Skemmtileg klósett ferð, passaði mig samt á því að standa ekki við þurrkarann í næstu ferðum :haha:

Svo var haldið á Emmu sem er heitasti staðurinn í Köben í dag, dress code og alles. Mátt ekki vera með sýnilegt tattú, verður að vera snyrtilegur og ég veit ekki hvað og hvað :haha:

Núna sit ég í herberginu mínu að spá í að fara að læra eða vinna, nema ég get varla hugsað því lyktin hérna er vibbi. Ghana maðurinn við hliðin á mér er að gera einhverja rosalega veislu í "einka"-ólöglega eldhúsinu sínu sem hann er með inni hjá sér. Liggur við að maður bjalli í inspektorinn. En þá gæti hann byrjað að elda í eldhúsinu og það er lítið betra :S


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6